María Bj.

María Bééé

24.12.2007 17:27:17 / mariabj

Gleðileg jól :)

Sæl öll sömul... :D

 

Ég vildi bara óska ykkur öllum, svona á síðustu stundu gleðilegra jóla og farsæls nýs árs... Takk fyrir allt sem ég hef gert með ykkur öllum á árinu sem er að líða hvort sem það var lítið eða stórt margt eða lítitð :D mér er sama vil að þið hafið það ÖLL saman gott yfir hátíðarnar sem og aðra daga

 

 

Jólakveðja María Bj. :D

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 23:49:37 / mariabj

Rauður berg-toppur

Já, all nokkru sinnum hefur mig langað að blogga upp á síðkastið.. en aldrei samt nennti því.. Mínir ástkæru aðdáendur, ég hef brugðist yður.. og eina leiðin til þess að bæta upp fyrir þetta er að blogga... held samt að það séu kannski 2 sem lesa bloggin mín en fokk it eins og maðurinn sagði...

Við stelpurnar í körfunni.. mfl. Snæfells, erum ósigraðar í 1. deild kvenna og þar með höfum við tillt okkur á toppinn. Við unnum ósigrað lið Hauka bé um daginn í lengsta leik sem ég hef spilað.. First þá byrjaði hann ekki fyrr en 19:25 og svo í hálfleik var grafið í sundur háspennustrengur og Stykkishólmur var rafmagnslaus í góðann klukkutíma.. við fengum samt rafman eftir 40 mín og ég sem betur fer var þetta í hálfleik... Hefði ekki verið gott að vera á harðahlaupum af því að það var kolsvart í húsinu, meira að segja út exit ljósin slökknuðu (batteríislaus wúpsí??).... Svo voru stelpurnar að spila í dag á móti Tindastól fyrir norðan. Þær unnu 88 -50, í að þeirra sögn frekar slöppum leik.. Karen ráðlagði mér að spila ekki, þar sem ég má helst ekki gera neinar hreyfingar sem eru vondar fyrir öxlina og þar teljast með fráköst, sendingar og annarskonar högg á hendina. Frekar erfitt að spila og fara ekki í fráköst og senda bara með hægri ! haha:D en ég lenti í einhverjum árekstri á þriðjudaginn á æfingu og það gerðist eitthvað, þetta er ekkert varanlegt bara kemur með tímanum... maður treystir Karen fyrir svona málum :D Ég má samt æfa, bara ekki gera neitt sem er vont... Já, þetta verður erfið vika!!

Annars er ég ennþá í lærdómslægð síðan eftir lotuskipti... Nenni bara ekki að læra.. geri það nú samt, dett í gírinn kannski svona 3 tíma á dag í mestalagi... voandi fer maður að rífa sig upp úr þessu og klára önnina með trompi! haha :D stefnum að því.. taka næstu vikur í lærdóm og taka svo heeeeeljarinnar slökun í jólafríinu...

Í gær, laugardag, komu Hólmfríður og Ingi með krakkana, Sölva, Tómas og Emblu Maríu... Þau eru ekki búin að koma síðan í júlí í fyrra haha :D voru ansi hissa yfir öllum nýju húsunum haha:D Þau komu nú samt í tilefni þess að við vorum að skera laufabrauð í gær... Þetta voru nettar 120 kökur held ég ... og sjaldan hefur verið svona lítið um þrjár rendur.. (klassík)... Áður en útskurðurinn hófst fórum við í afmæli hjá Rebekku, sem er alltaf í líkingu við fermingarveislu.. Það er vá kökur og annað meðlæti!... Það má segja að maður hafi verið saddur til 8 - hálf 9... en já þá varð maður svangur... og klukkan 10 þá algjörlega sprakk mælirinn hjá mér, ég var að deyja úr hungri en þá var borin á borð svokölluð haustsúpa, mæli með þessu.. Mamma eldaði bara einn steikarpott! HAHA og svo svolgruðum við þessu í okkur! ljúfengt, ó já!:D

Í dag var svo vakið mig með öskrum af nöfnu... :D síðan var ég bara að leika við Tómas og eitthvað ekkert að hugsa um alvöru lífsins... fór á Mostri - ÍR, sem var já skrautlegur haha :D síðan var pítsuveisla a la Mamma og lærdómur... Hólmfríður og co. eru veðurteft og fæ ég því að gista beddann aðra nóttina... hata þennan bedda!! myndi sofa í sófanum ef öxlin leyfði.. :$

Vonandi ófært í skólann á morgun! :D ....þar til síðar

 

 

Mætumst... María Bj.


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 11:46:43 / mariabj

4 dögum síðar.. hmm

Já sælt veri fólkið.. ekki það að ég búist við að það kíki neinn inn á þessa síðu lengur..

Ég er eiginlega búin að ákveða að hafa þetta bara bloggsíðu.. sesmsagt ég nenni ekki að láta neitt til þess að skoða... :$ kannski kemur sá dagur .. hver veit ;)

Annars er ansi margt búið að gerast síðan hann Rúnar átti afmæli... meðal annars

  • Haustfrí, þar sem að ég reyndi hvað ég gat að læra ekki neitt.. sem tókst bara nokkuð vel held ég :D. Við stelpurnar gerðum okkur líka ferð upp á Selvallarvatn, þar sem við ætluðum að eyða einni kvöldstund saman. Við enduðum samt ekki nema 3 sem vorum allan tímann, það er ég Sunna og Unnur.. En Hanna Rún, Heiða María og Auður komu og borðuðu með okkur og svo kom Gunnhldur. Reyndar kom óvenjulega mikið af öðru fólki, sem ætlaði sér að hræða okkur.. en það tókst ekki.. en við fórum samt heim um nóttina eða klukkan 3.. Reyndar bara ágætt að sofa í sínu rúmi.

  • Ég tók bílpróf þann 22. október og náði :haha:. Ekki má gleyma því að Sunna tók líka og náði líka :haha:hörku tutlur skooo...

  • Við spiluðum fyrsta leikinn á tímabilinu. Hann fór fram á ekki verri stað en Laugardagshöllinni. Þar fórum við, hvað eigum við að segja.. Berserkjaskessurnar með sigur á annars ágætu liði Ármans/Þrótts. Leikurinn endaðid 46 - 70 eftir að mig minnir 4 stiga mun í hálfleik.

  • Embla María er farin að skríða og komin með fullt af tönnum :haha:

  • Svo í gær var einmitt halloween ball hérna hjá okkur í FSN.. Ég hef skemmt mér betur á balli en þetta var samt bara fín tilbreyting í mitt litlausa líf haha :D grín.. Reyndar held ég að það versta er höfuðverkurinn og hálsbólgan, sem banar ekki mikið með 4 svefni:!:

  • Í gær var líka 6 leikurinn hjá mfl.karla í deildinn.. Og unnu þeir Tindastól nokkuð sannfærandi. Leikurinn var samt ekkert voðalega áhugaverður, en samt sem áður mjög góður á köfulum, reyndar líka alveg fáránlegur á köflum.. t.d. sprakk öll stúkan úr hlátri tvisvar sinnum... Ég var á kústinum fyrir Snjólf þar sem hann var á Æskulýðsballi í Borgarnesi! Litla barnið 8|.. en ég held að ég sé hér með hætt að gera grín af honum fyrir að dotta á kústinum í úrslitarimmunni á móti Keflavík hérna um árið... Þar sem ég var ekkert sú snöggasta að fatta að það var verið að kalla á mig:$.

Næsta mál á dagskrá er að það er leikur í kvöld hjá okkur stelpunum í mfl Snæfells.. Hann mun fara fram í Kópavogi á móti Breiðabliki klukkan 19:15.

Við eigum svo annan leik á sunnudaginn á móti KR-b... sá leikur átti að vera um síðustu helgi fyrir þá sem eru ekki að fatta :D.. Leikurinn verður heima og klukkan 19:15 ...


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 16:20:28 / mariabj

Afmæliiiiiiii

Játs góðann daginn.. laugardagur í dag, 13. október og það er nánartiltekið löng helgi útaf sjúkraprófdegi og ekkert hægt að kvarta yfir því!:D

Aðal ástæðan fyrir þessu bloggi mínu er að hann Rúnar Geirmunds á afmæli í dag... og kauðinn er 16 ára í dag..

Rúnar er mjöööög hress strákur, sem hefur gaman af því að tala! :D Ekki það að það sé neitt að því! :D Á víst ansi marga vini sem eru þannig...

Rúnar beibí er í tveimur hljómsveitum, þar sem hann syngur. Að mér finnst mjög vel! svona rokkrödd:D það er kannski bara ég en mér finnst svona hás söngur svalur.. nefni bara sem dæmi Rocstar INXS þáttaröðina.. þar voru nokkur svona eintök! og vá.. en :D áfram..

Haaann er svo líka að æfa fótbolta og miðað við að húsgögnin séu ekki öll límd saman með tonnataki þá er hann bara nokkuð góður :D svo er hann líka í blaki og að mér skilst með mjög skemmtilegt skap inná vellinum.. tjahh eða svona þannig;)..

En bara svo allt sé á hreinu.. þá er Rúnar þungarokkari ;)

Til hamingju með afmælið Kútur :*
hahahaha :D
látum fljóta með myndir af Rúnari eins og hann VAR! í denn tid ;)
og kannski nýlega líka ... :$
Fékk að stela smá myndum stelpur vona að það sé í lagi...
Annars takk fyrir mig ..
Mætumst... María Bj.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 20:41:36 / mariabj

w/v

Já Góðan Daginn...

Ég hef nú lítið verið að skipta mér af þessari síðu upp á síðkastið.. en það segir sig sjálft að á meðan var nóóóóg að gera þannig það er bara betra... sjáum samt til hvort ég nenni að bæta inn einhverju skemmtilegu hérna bráðlega... haha :D allt ,,nýja" orðið hálfs árs!... en jæja...

jæja, það merkilegasta sem er búið að vera í gangi hérna er væntanlega:

  • Að skólanum var aflýst á miðvikudeginum fyrir viku! :D sem var bara Snjeeeld :D.. Gott að fá svona ,,helgi" inní miðri viku, það er dag sem maður getur sofið aðeins lengur ;) og svo lært í því sem er búið að vera að bíða svolítið lengi :$....

  • Útivistardagur FSN... Sem var snilld :D... Mættum í skólann á reyndar sama tíma og venjulega.. en við vorum bara að chilla í andyrinu í svona já klukkutíma... síðan löbbuðum við upp á fjall sem er að mestu leiti, þar sem er labbað, úr smá grjóti.. Og þetta var skemmtilega bratt;)... En jám eftir 1,5 tíma göngu hlupum við niður skriðu haha:D það var svooo mikil snilld! :D Geðveikur hraði, sem maður réði ekki beint við... haha :D enda fór ég næstum því á hausinn nokkrum sinnum, en það voru nú aðrir sem tóku það hlutverk að sér ;)... Eftir að við komum niður var brunað upp í skóla og þar var pítsuhlaðborð.. Klukkan eitt fórum við svo í óvissu keppni, þar sem við vorum búin að skrá okkur í lið og vissum ekkert hvað við vorum að fara að gera, enda óvssu keppni haha:D.... Við fórum í vítaspyrnukeppni, sippkeppni, boðhlaup (þar sem fimm kræktu saman höndum), eltingaleikur, jafnfætisstökk keppni og sunþraut einhverja.. held ég sé ekki að gleyma neinu.. haha :D eftir sundið var svo kökur og kakó uppi í skóla og verðlaunaafhending, engin smá verðlaun þar á ferð! 2 sykurpúðar á mann og plast sverð og öxi. haha:D ég er bara sátt við mitt 3. sæti eða í rauninni 2. sæti þar sem að það voru tvö lið í 1. sæti ;)
    - ég væri alveg til í fleiri svona daga :D
  • Við erum búnar að eiga verstu törn í heimi í körfunni. Justin greyið er alveg að missa vonina um að við eigum eftir að vinna einhverja leiki í vetur... Og ekki var æfingin eftir útivistar daginn að bæta þetta!... Ég hef samt persónulea ekki verið svona vel stemmd á æfingu, eisn og ég var eftir fjallgönguna og keppnina síðan fyrir landsliðsæfingarnarnar þarna um daginn... uss suss...
  • Síðasti punkturinn sem ég nenni að gera... :D það er Paintball mót í FSN á morgun.. og jújú maður verður nú að vera með er það ekki ;) haha... Þaaannig allavega, ég er að fara ásamt Trítlunum það eru: Íris, Unnur, Gunnhildur, Helga frá Stykkó og Sunna, Laufey og Þórdís frá Grundó... held að ég hafi munað þetta rétt svona til tilbreytingar :o hahah:D...

Annar hef ég bara verið að drukkna í heimalærdómi, og sluggsa við það að læra,,Fara í ræktina og pottinn eftir æfingar í staðin, alveg eins og kærulausasti bavíani!... Svo eru moms og páps í Kanada og eru búin að vera núna í viku... væri ágætt að fá þau bara heim! Þurfti að sleppa ræktinn í kvöld til þess að geta eldað oní strákana.... haha uss þetta er ekki metnaður.. En þau koma nú bara á laugardaginn, þannig þetta ætti að reddast... oooog þá fæ ég bláan ipod-nano, nýju útgáfuna :haha::haha::!: GLEÐI :haha:

Kem kannski með svona tjúúú tjúúú uppfærslu eftir paintball, annars bara næst þegar ég man eftir síðunni minni ;)

 

Mætumst... María Bj.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 21:19:13 / mariabj

21. september 2007

Gleðilegann föstudag, námsmenn sem og aðrir vinnu alkar...

Þessi vika er búin að vera mjööög lengi að líða á nútímamælikvarða. Allavega í mínu lífi. Held samt að meigin ástæðan sé sú að ég hélt að það væri fimmtudagur á mánudaginn og svo aftur á þriðjudaginn...tjahh...

Annars tókum við áðan síðustu svona keyrslu æfinguna fyrir leikinn á mánudaginn. Jesús.. Þessi æfing kemst í safnið með verstu æfingum sem ég hef farið á... held að hún sé bara í topp 4 8|.. Vonum að þetta sé bara longið á undan storminum ef þið skiljið ;)

Ég er hinsvegar að fara að vinna á morgun og sunnudaginn klukkan 8, svo súper dugleg.. held samt að allur annar tími (nema þessi:$haha) muni fara í lærdóm... veitir ekki af því eftir svona afslappaða viku. Potturinn á næstum hverju kvöldi eftir æfingar og stanslaus sæla.

Í dag bauð KB-banki okkur í bíó í sögumiðstöðinni í grundó. Myndin sem var sýnd var Veðramót. Hörku mynd. Þó mig hafi langað að berja helvítis stelpuna sem rústaði öllu svolítið oft. Ég þoli EkKi! að horfa á svona fyrirsjáanlegt kjánalegt eða eitthvað. Æ t.d. Mr. Bean og Andrés Önd voru pintingar þegar ég var lítil!...

En núna er ég bara rokin út í góða veðrið.. eða það er allavega fínt veður í bílnum hjá Gunnhildi minni :):* held að planið sé að ná í Súmí og hverjri fleiri ætli detti inn??... veit ekki...

Íris Gunnarsdóttir: sentu mér þá MAIL hahahah svindlari! ;):*

 

Mætumst... María Bj :* 


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 15:28:34 / mariabj

rúmlega fjórum dögum síðar

8) ég er mætt aftur....

JÁ... það er sitt hvað búið að gerast síðan ég skrifaði hérna síðast... T.d.  skemmtilegheit í íþróttahúsinu a la Oddrún beibí, réttaball... endalaust heimanám og svo bara þetta gamla góða æfingar, tónó og chill ;)

 Ég hef svosem ekki margt að segja... Nema hvað það fer að styttast í fyrsta leikinn okkar Snæfell kvenna.. En hann verður einmitt í bikarnum á móti Haukum, að Ásvöllum, á mánudaginn... það verður hörku barátta allvega vona ég að við förum af stað með hærra markmið en síðast þegar við spiluðum á móti úrvalsdeildarliðið... við héngum þó vel í þeim ,, haaaa Hamar A .. hver man ekki eftir kananum hjá þeim.

 

Unnur segir: hæ nei 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 19:38:07 / mariabj

allt að komast í gang..

Np: Last Goodbye - Jeff Buckley

This is our last goodbye
I hate to feel the love between us die.
But it's over
Just hear this and then I'll go:
You gave me more to live for,
More than you'll ever know
.

Klárlega lag sumarins!

Skólinn byrjaður á fullu sem er bara ágætt... svolítið erfitt að komast í gang. Maður hleður bara upp heimavinnu og vonast svo til þess að þetta vinni sig sjálft í burtu.. alveg típískt!

Well, this is our last embrace,
Must I dream and always see your face?
Why can't we overcome this wall?
Baby, maybe it's just because I didn't know you at all.

Á föstudaginn skellti ég mér í mína þriðju ferð til Reykjvaíkur síðan ég kom frá Svíþjóð. Tilefnið var tannlæknir og ég held að það sé enginn hissa... Ég fór með Sveini og Snjólfi, en eftir tanna vorum við nú bara að leita okkur að einhverju að gera þarna í höfuðborginni... Sem endað með því að við fórum heim til Hólmfríðar og ákváðum svo að fara í bíó á Astrópíu.. Mér fannst hún mjög flott :) man ekki eftir því að hafa fengið hláturskast í bíó áður... Sveinn fór svo heim en ég og Snjólfur vorum eftir hjá Hólmfríði. Litla dýrið var að fara í Úrvalsbúðir KKÍ.. jájá gaman af því.. Hinsvegar var ég eftir af því að við stúlkurnar: Ég, Unnur, Gunnhildur, Sigrún, Auður, Sunna, Íris, Heiða & Hanna Rún ætluðum saman í bæjarferð. Og svona pínu í tilefni af því að Unnur átti afmæli... :)

Kiss me, please kiss me,
But kiss me out of desire, babe, and not consolation.
Oh, you know it makes me so angry 'cause I know that in time
I'll only make you cry, this is our last goodbye.

Did you say, "No, this can't happen to me"?
And did you rush to the phone to call?
Was there a voice unkind in the back of your mind saying,
"Maybe, you didn't know him at all,
you didn't know him at all,
oh, you didn't know"?

 


Það fylgir því samt að gista hjá Hólmfríði að maður er vakinn svona um átta leitið... en maður sættir sig nú við það þegar maður fær að knúsa Emblu og Tómas =) verður bara þreyttari út vikuna, en hvað með það ;)

 

Annars er karfan bara að skríða af stað sem kætir mig haha :D við erum samt búnar að vera að fara í salinn núna í eina og hálfa viku.. En ef allt gengur að óskum þá mun Justin meiga þjálfa okkur í vikunni :D Ekki bara við í salnum að reyna að sýna smá aga ;).. Það er samt mjög gott að byrja þannig.. svona með engan þjálfara:$ Allavega svona upp á að koma sér í smá hlaupa form án þess að vera undir smásjá.. ;).. Fyrsti leikurinn okkar er á móti Hamar í Hveragerði þann 19. okt. ef ég fer ekki með fleypur :D þannig bara allir að mæta á pallana þá ;)

Well, the bells out in the church tower chime,
Burning clues into this heart of mine.
Thinking so hard on her soft eyes, and the memories
Offer signs that it's over, it's over.
 
Annars er búið að gefa út fyrstu tónó tímana, en eins og flestir tónlistarnemendur í Sth. sem æfa íþróttir þarf að breyta þeim þokkalega mikið þegar íþróttataflan kemur út... án efa uppáhalds vesen tónlistarkennaranna hér í bæ;) ...
læt þetta gott heita í bili...
Mætumst.. María Bj.

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 12:57:12 / mariabj

Hóm svít hóm

Jæja... 4 dögum síðar :D

Ég er núna búin að vera heima í viku... þó líklega minnst heima, inni í húsinu en samt heima í Hólmi... :D Það var mjög fínt úti en alltaf frábært að koma heim :D

ég var komin til landsins sunnudaginn 12. ágúst.. Mamma litla kom og sótti mig og við brunuðum beint upp í mosó í barnaafmæli. Fórum svo heim.. Gunnhildur kom og öskraði þegar ég kom út úr bílnum, inni í bílskúr... og svo kom Sigrún og fékk að horfa á mig taka upp úr töskunum... ég þoli ekki að hafa ferðatöskur á gólfinu í maaaarg daga.. Og SVO fór ég Út með SUNNU og Sigrún!  mánudagurinn fór svo í eintómt chill í góðaveðrinu og þriðjudagurinn tannréttingar. Frekar fínt að fara suður og ekki þurfa að versla neitt... :D Fékk samt að fara í fyrsta ungbarnasundtímann hjá Emblu Maríu í þessari ferð, og það eyðilagði ekki daginn.. =)

miðviku- og fimmtudagur voru mest chill, sund og svona .. nema á fimmtudaginn á slaginu 17:12 fórum ég og Gunnhlidur með hjólbörur og trjáklippur út í móa til þess að klippa illgresi fyrir skreytingar. Því auðvitað var skreytt á Himmelbjerget fyrir Danska Daga ;) Það var samt ekki dregið fram neinar nýjungar í ár... samt sem áður bara mjög fínt :D alltaf flottust ;) Á fimmtudaginn fórum við stelpurnar svo á röltið, eins og svo ooooft áður... það var fínt og kalt :D fórum meira að segja upp á Súgandisey og ég átti ekki hugmyndina 8| :D stollt af stelpunum ;)

Þetta blogg er að verða eins og versta dagbók en svona ómerkilegir eru nú greynilega hlutirnir sem ég er að gera... eða ég kann ekki að segja frá þeim..

Á föstudaginn var sama gamla sagan, chill og sund.. ég passaði líka aðeins fyrir Gunnhildi og tók til í herberginu... því jú aðsjálfsögðu er maður rekin úr því með stæl... en það er samt allt í lagi... :$ :D fékk að liggja á bedda inni í stofu... Kaaastjing... Hverfagrillið var mest kósý, færðum okkur niður á róló í ár og mér fannst það bara æði =) Ég veit ekki alveg, en ég er ekki frá því að við systkinin séum mjög vanaföst því að síðan hverfagrillin byrjuðum borðum við alltaf það sama á þeim.. og það klikkaði ekkert í ár ;) Júgóslavneskar kjötbollur a la Pabbi með sinnepi (ég borða ekki sinnep btw, nema á D.D.) og svo svona lítil brauð og salat.. Éf byrjaði síðan á því að tölta með Heiðu og Bjarka niður í Lágholt.. hittum þar Hilmi og Gunnhildi og ég stakk af með þeim og svo hitti maður alskonar fólk þetta kvöld.. allstaðar af landinu bara stemming...

- Sjálf Dönsku daga stemmingin felst í því að rölta upp og niður aðalgötuna meðal 1000 manns hitta félagana stoppa og spjalla í ágúst blíðunni... & það gerði ég til 3 þetta kvöld minnir mig ...

Laugardagur:

Vakin um 11.. Fótboltaleikur hjá Snjólfi, rölt í leit að fólki, rölt með Írisi og Auði (frænku hennar) upp á dönsku daga tún, setið í brekkunni og hlegið af Björgvini Franz (s):$, sýna mig og sjá aðra, tók þátt í ljósmyndakeppni þar sem systir mín vann 90 þúsund kr. myndavél:!:, vinna á særúnunni til rétt að ganga 10, heim í mat, bryggjuball og svo dansi ball, dönskudagastemming til 5 og svo bakaríið og heima að sofa...

Síðan þá er ég ennþá þreytt... er í bænum, var að versla skólabækur... og miðað við byrjunina á skólanum í dag þá sé ég strax eftir því að hafa ekki skipt um skóla...

Amen

Mætumst María Bj.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.08.2007 15:11:43 / mariabj

<3

Halló halló...

Það drógst víst pínu úr þessari bloggfærslu minni sem átti að koma fyrir þrem vikum! haha ... en svona er þetta bara... . ;) Það var samt mjög fínt í Gautaborg.. við vorum í húsi sem foreldrar manns frænkuminnar eiga... Það er varla hægt að búa í húsinu þeirra af því að já það er 8 metrum frá jörðunni og stendur á einhvejrum stólpum hahaha... En þetta hús var bilun! kristallljósakrónur í ÖLLUM herbergjum, engin smá húsgögn og vá, maður gat varla komið við neitt... en samt ég náði að eyða næstum öllum júnílaununum í Stadium XXL! Ég hef aldrei og mun líklega aldrei máta svona oft í einni og sömubúðinni.. og við er um að tala um sér KÖRFUBOTLADEILD...

Jáw... annars aðeins meira í nútímann... ég er búin að búa hjá frænda mínum, Ægi, í Smögen þessa vikuna af því að frænka mín og fjölskylda voru í Stokkhólmi.. Það er búið að vera mjög fínt svona upp á að komast niður í bæ... ( þar sem ég bý venjulega er ekki svona bær, bara byggð..) Og eitt það besta við Smögen... Það er ekki spurt um skilríki á bestu stöðunum! verrí næs ;)

Það er samt ekki beint búið að rætast vel úr veðrinu þetta sumarið.. Það er nú gottí dag og verðrur fínt á morgun en svo á að rigna aftur... Þannig ef ég sé smá sól þá hleyp ég út á svalir.. maður heldur í vonina um að vera ekki hvítari en íslendingarnir sem eru búnir að vera heima í góðaveðrinu...:$ 

Þrír dagar eftir í vinnu, 4 af mínum bestu félögum í vinnunni eru hættir þannig núna veður maður að treysta á ipodinn... skal lifa þetta af ! ;) Hlakkar pínu til að koma heim :D hitta fólk sem þorir að bjóða manni með og svona ! pff Svíjar eru feimnasta þjóð í heimi! 

Ég get samt alveg sagt það að ég væri til í að koma hingað aftur næsta sumar... allavega eins og stendur á núna... kannski samt vinna annarsstaðara, eða bara kíkja í frí hingað...

Allavega ætla ég ekki að hanga lengur inni og láta góðaveðrið hlaupa frá mér... Sjáumst eftir viku :*

 

  <3  Mætumst.. María Bj.  <3 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 19:40:47 / mariabj

19. júlí 2007

hæj... =)

Jæja... rúmlega þrjár vikur eftir 8| það virðist nú ekki svo mikið haha... Hugurinn leitar samt oft heim... Langar samt alls ekki heim strax.. haha þetta er einskonar vítahringur =P

Veðrið er enn ekki alveg komið í sumarfíling hérna.. sem er alveg ótrúlega svekkjandi! það er bara skýjað og smá sólarglyttur af og til. Samt alveg ágætlega heitt. Það þarf samt ekki mikið til þess að maður nái sér í smá lit =) En þetta er samt svo oft svona, þegar það er gott veður á Íslandi er leiðinlegt verður í Svíþjóð og öfugt!

Í dag var svolítið mikið að gera í vinnunni... ég var á tímabil að pakka af tveimur færiböndum í einu:!: ... ef þið eruð að efast, þá er það mikið... Þannig ég hef ekki hreyft mikið meira en litla putta síðan ég kom heim.. Það er samt svo skemmtilegt fólk að vinna nákvæmilega núna! sumir í sumarfríi sko;) eða sko stemmingin er svo skemmtileg núna :D.. Ég er að vinna með Nicklas, sem er 18 ára og svo konu sem heitir Helen og er farin að elska Kang kang.. Ég get hlegið endalaust af henni! Svo er einn kall John sem er bara fyndinn, kann enga ensku þannig ég þarf að æfa mig í sænsku þegar ég tala við hann. Og svo er Oke, hann er svona yfir okkur núna, en hann er vinur Ægisfrænda þannig hann er alltaf voðalega góður við mig (þótt hann sé eitthvað að pirra hina). Hann er meðal annars búinn að bjóða mér að koma aftur næsta sumar! haha :D gott er að eiga góða að segi ég bara =)

Um helgina gerði ég nú ekki mjög margt frásaganfært! haha =P nema liggja í sólbaði og jú reyndar.. Gunnar (Pabbi minn þetta sumarið) átti afmæli á föstudaginn. Í tilefni þess var Hrönn búin að panta kayaka handa okkur öllum. Hann fattaði ekki neitt fyrr en við héldum á kayökunum! haha :D ekkert smá vel heppnað. Við sigldum svo í geðveiku veðri, ég varð snögglega ástfangin af kayökum! Við fórum inn í vík þar sem þau fara oft með vinafólki sýnu og baða.. Þar var tekið fram grill og matur og haldin veisla, svo var lagt sig eftir matinn (sólbað). Þetta var æði!

 


Hrönn, Gunnar, Vilma og Fannie í víkinni

 

Á morgun klára ég að vinna klukkan hálf 1 =D Þá verður labbað heim með körfuboltann við höndina, svo tekið sig til og haldið til Gautaborgar... Við förum og verðum í húsi frænku minnar og hún og hennar fjölskylda koma hingað á meðan. Þau eru að stækka húsið sitt og í staðin fyrir að byggja ofan á það ákváðu þau að lyfta því upp og byggja kjallara.. Þetta vekur víst mikla athygli túrista haha :D Get samt ekki beðið eftir því að komast í búðir og versla! haha ég er komin með ofur leið á fötunum mínum ( er náttúrulega ekki með allan fataskápinn;)) Við ætlum líka að fara tvo daga í Liseberg (tívolíið) það verður hörku stemming :D

Ég kem svo heim á mánudaginn með skemmtilegra blogg.. ;) ég býst við því að Susanna og þau verði hérna eitthvað fram í vikuna, annars verð ég bara ein heima.. Kemur í ljós...

 



Ég setti inn myndir á myspace... eitthvað smá allavega =)

 

Jább, það náðist ein mynd af mér! haha =) 

 

Þar til síðar ;) ... oooog ég sakna ykkar! ótrúlegt hvað ég á marga vini! =) haha maður tekur svo eftir því þegar maður fer frá ykkur :/

 

Mætumst.. María Bj. :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 19:36:46 / mariabj

Hey oh,, listen what I say ohh,

 

Kvöldið...

Í dag er ég búin að vera hérna í Svíjaríki í mánuð. Mér finnst þetta nú búið að líða frekar hratt hingað til... spurning hvort tíminn líði of hratt :|

Annars er alltaf jafn gaman á föstudögum, þá hættum við klukkan hálf eitt í vinnunni :D Og í dag talaði ég við strákinn sem ég vinn með og bað hann um að láta mig vita ef það yrði eitthvað í gangi um helgina, og ég bað stelpuna líka um þannig kannski mér takist að hlassa mér niðrí bæ og gera eitthvað.. Allavega var síðasta helgi aðeins of róleg ef út í það var farið, og þessi byrjar nú svipað..

Ég fór í körfu í dag, á þessar hryllilegu körfur hjá skólanum í Kungshamn. Samt þess virði að skjóta aðeins en það er samt ekki gaman þegar maður er einn með of lágar beyglaðar körfur á of litlum velli! haha

Hef það annars mjög gott, örugglega of gott.. Hérna er borðað ný fersk jarðarber annan hvern dag og legið úti í sólinni og skýjunum en alltaf hitanum og slappað af...

Ég hef smá yfirlýsingu!

Ég ætla að spila með Snæfell í vetur og stunda nám við tónlistarskólann í Stykkishólmi, væntanlega þá vera í FSN, allavega haustönn, sjáum svo til...

ég komst samt inn í FSu en eftir miklar og þá meina ég MIKLAR vangaveltur þá ákvað ég þetta.. Svo treysti ég bara á að Sveinn fari í háskóla og búi á temmilegum stað fyrir körfuboltalið og framhaldsskóla ;)

Annars! Ég er bara að leita uppi fólk hérna, þessir svíjar eru kannski ekkert svo lokaðir, eða kannski. Allavega er ég ekki að þora að tala við þetta fólk af viti.. og ekki heldur í bestu aðstöðu í heimi.. Sit með 3 konum og stelpu sem lætur eins og kona í öllum kaffi og matartímum.... pjeff... hahah :D

Jæja Gunnhildur þú fékkst blogg! - Ég sakna ykkar allra! þó ég myndi samt ekki vilja koma heim strax, þið skiljið vona ég... Hrönn, Gunnar, Fannie og Vilma eru æðisleg og ég gæti ekki hugsað mér að vera hjá öðru fólki! Bara að láta ykkur vita :!:




 

 

 

 

Mætumst... María Bj.


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 22:08:49 / mariabj

...... er 27. júní bráðum... Ég held það bara =D

Bless sweet sixteen...

I´m sixteen, going on seventeen...

Úr hvaða mynd ? haha :D

 

Ég er svo mikið afmælisbarn að ég gat ekki staðist það að setja smá yfirlýsingu hérna :$ :D

Fannie og ég í búð jább.. maður er búinn að kenna þessu liði að pósa og skemmta sér í búðum 8) 

Annika, Stelpan sem ég er að vinna með, ástam stráknum sem byrjaði á máundaginn Niclas (eða hvernig sem það er skrifað) eru búin að hóta því að syngja fyrir mig í matsalnum á morgun 8| og ég hef alltaf sloppið við þennan fjöldasöng þannig ég er ekkert spennt fyrir þessu... :$ haha ... verður vandræðalegt, það er að segja ef þau muna eftir því!

 

Annars óska ég ykkur til hamingju með fallegasta dag ársins =) <3

- það hefur alltaf verið gott veður 27. júní síðan ég fæddist.. látið mig vita ef það bregst (A)

 

 

Mætumst ... María Bj. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 10:36:12 / mariabj

Einu sinni fyrir langa löngu....

hæh

Ég hef ekki nennt að skrifa hérna inn fyrr en það er allt í lagi af því að þið þarna heima eruð öll á kafi í vinnu og ekki endilega að vafra allan daginn ;)

Í gær var midsommaraften og eyddi ég því á Hovenes eða hvernig sem það er skrifað. Þangað er ekki hægt að fara á bíl þannig við sigldum með bát yfir. Ótrúlega flottur staður. Þarna eiga vinafólk Hrannar og Gunnars sumarhús. Nenni nú ekki að telja upp allt sem við gerðum en það var samt dansað í kringum svona stöng, eins og í Emil í Kattholti (held ég að það sé frekar en í Börnin í Ólátagarði). Samt í grenjandi rigningu, mikið gaman mikið fjör.

Annars hef ég verið að gera margt en samt ekki svo mikið haha... Byrjaði að vinna á mánudaginn og fékk 4 daga vinnuviku frekar næs... Ég er að vinna þarna í pökkun, pakka niður mæjónessalötum með rækjum, humri, laxi og þar fram eftir götunum... Alveg ágætis vinna, samt frekar þreytandi að standa lengi og gera sömu hreyfinguna.. tekur líka á hælana í þessum skóm sem maður fær... samt er kannski það erfiðasta að vakna kl.6 á hverjum morgni, sérstaklega fyrir svona nátthrafna eins og mig en þetta kemur allt.. vonandi! Í verksmiðjunni, Strannes Rökeri er setustofa með tveimur fartölvum og leðursófum + koddum og teppum og lyftingasalur.. og auk þess er ekki slæmt útsýni úr matsalnum yfir Smögen.. Nóg um vinnuna, því eins og Hólmfríður frænka sagði: Það var aldrei vinnan sem átti að vera skemmtileg heldur allt hitt :D, góður punktur..

Annars er ég búin að komast einu sinni í körfu hérna, fór með Gunnari og Vilmu.. Annars hef ég bara verið að gera dippl æfingar hérna fyrir utan.. Eins léleg og ég er í því þá kemst litla frænka mín, Vilma, ekki yfir það hvað ég sé góð :haha: sem mér finnst náttúrulega bara fyndið.. Mér er nú samt að takast að smita hana smá af körfuboltaáhuga, nokkuð gott, nokkuð gott ! :D

Núna er ég búin að vera hérna í 18 daga... og ekki laust við það að mig langi pínu oggu ponsu mikið að fara heim... en hver er tilgangurinn með því þegar Mamma og Pabbi og Snjólfur eru á Portúgal og Sveinn í Króatíu :( hahaha

35 vinnu dagar eftir = 7 vikur ... 49 dagar með helgum

Við sjáumst bráðum, og já btw, þá er ég með Skype en ég man ekki hvað það er, leitið bara að mariabj ;)

 

 Mætumst... María Bj.


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 20:05:22 / mariabj

Sjómanndagur

!Hola!

Jáá, sjómannadagur í dag.. Ég er frekar sátt með endurlífgun hátíðarhaldanna á sjómannadaginn. En hinsvegar hefði ekki verið svona gaman af þessu ef þetta hefði ekki verið fellt niður í eitt ár.. þetta var orðið alveg glatað.

Ég náði því að verða lasin hérna á fimmtudaginn, en samt fór ég suður til tannlæknis og til annarra erinda í Reykjavíkinni... Meðal annars kvaddi ég litlu stórfjölskylduna í Drápuhlíðinni.. þar sem ég mun ekki hitta þau aftur fyrr en í ágúst 8|:$ En það er auðvitað af því að ég er að fara út... 6. júní og kem svo aftur 12. ágúst... sunnudaginn 12. ágúst, helgina fyrir dönsku dagana.. Ég verð að vinna þarna í einhverri verksmiðju sem vinur frænda míns á, og ég mun búa hjá frænkum mínum, Hrönn og dætrum..

í gær, laugardag var ég að vinna á Særúnunni í veislusiglingu... þaaað var hörku stemming... eða mér fannst það :P.. við vorum þarna ég, Sunna, Sara D., María Kúld, Snæbjört, Kolla og Palli kokkar og svo var Ragnars (Baldur) þarna að hjálpa til  :D helvíti góð stemming... held samt að besta mómentið hafi verið þegar einn kallanna sem var í siglingunni sem var að klárast þegar við vorum að bera vín í bátinn fór á skeljarnar fyrir Maríu Kúld! haha ...í von um vín ;) En það var ekki fyndið þegar þeir fóru að syngja fyrir mig og knúsa mig  af því að hún sagði við þessa fullu kalla að ég ætti afmæli ! ojj bara .. haha .. En þeir voru einmitt að vonast til þess að fá vínkassann líka.. Eftir uppvaskið, humar í magann og sturtu þá kíkti ég út með Sunnu og hitti fullt af fólki... bara gaman af því ;)

HEey já talandi um það... þá hef ég verið að vinna í tveim siglingum hjá Sæferðum og keppti svo með stelpunum í reiptogi og við unnum! haha fengum verðlaunapening og allt! Segið svo að maður sé ekki sjómaður! haha :haha:

Ég er kannski að gleyma einu en það er það að ég er raddlaus og þykir mörgum manninum það fyndið... eeen ekki mér! WEll ég nenni ekki að babbla meira, l8er

Úrslit Úr Síðasta Skoðanakönnun

Mætumst... María Bj.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11